Blái Demanturinn

Sögu- og náttúruþemagarður verður að veruleika!

Blái Demanturinn byggir á nýrri stoð í afþreyingariðnaði á Íslandi; Sögu- og náttúru þemagarður. Grunnurinn að þemagarðinum er þegar til staðar og þróunin byggir á því að tengja segla saman og skapa það gríðarlega aðdráttarafl sem samlegðaráhrifin bjóða uppá ásamt því að treysta grunninn, svo hægt sé að byggja upp til framtíðar.

Tilurð verkefnisins er sú að leita svara við því hvað við Íslendingar getum gert í ferðamálum framtíðarinnar. Mikil aukning er í klæðskerasaumuðum ferðum í heiminum í dag og ferðaþjónustumarkaðurinn er í sífellt auknum mæli að sérhæfa sig. Ferðamenn vilja komast í styttri ferðir og þörfin á heilsdagsupplifun eykst stöðugt.

Á Reykjanesi höfum við innhlið Íslands og umhverfi þess og náttúra er einstök í heiminum. Sú staðreynd að hér krauma kraftarnir undir fótum okkar hefur mótað allt umhverfi á Reykjanesi frá því eyjan Ísland reis úr hafi. Þó nesið virðist lágt og fjalllendi sé ekki mikið frá sjónarhóli ferðamannsins segir það ekki alla söguna. Reykja-nesið er í raun eldfjall sem nær langt suður í Atlantshafið, í raun aðeins hluti af lengsta fjallhrygg í heimi. Í þessari hörðu og sérkennilegu náttúru er hægt að finna mögnuð hverasvæði, einstakt fuglalíf, gígaraðir, ævintýralega hella og gönguleiðir við allra hæfi í einni fallegustu hraunbreiðu sem Ísland hefur uppá að bjóða.

Blái Demanturinn saman stendur af:

Þessi vetfangur er nefndur Blái Demanturinn, byggður á þeirri hugmyndafræði að í raun sé svæðið einn stór þemagarður sem hafi uppá margt að bjóða, einn stór demantur í stað margra brota.